7 days ago

#17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þáttur

Eru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir vantraust og tortryggni sem halda kenningunni á lífi.

Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er kominn í loftið — bókstaflega — og aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Áttu dularfullan leyndardóm sem þú vilt að við kryfjum? Sendu okkur línu á skuggavaldid@gmail.com.

Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Atlantsolíu.

Comment (0)

No comments yet. Be the first to say something!

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125